Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir eldflauga- og kjarnorkutilraunir Norður-Kóreu „nýja ógn við heiminn“. Stjórnvöld í Norður-Kóreu tilkynntu í dag að ríkið væri orðið kjarnorkuveldi.
Tilraunir Norður-Kóreu með langdrægar flaugar síðastliðna nótt hafa verið fordæmdar en norðurkóreski herinn skaut upp eldflaug skammt frá Panghyon-flugvellinum í nótt sem endaði för sína í Japanshafi 37 mínútum síðar.
Tillerson sagði að hættan sem stafaði af Norður-Kóreu hefði stigmagnast við þetta. Hann bætti því við að stjórnvöld í Bandaríkjunum myndu aldrei sætta sig við að Norður-Kórea væri kjarnorkuveldi.
Áður höfðu Bandaríkjamenn óskað eftir neyðarfundi í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, þar sem aðgerðir Norður-Kóreu verða ræddar.
Bandarískir embættismenn telja að Norður-Kóreumenn geti skotið eldflaug til Alaska. Sérfræðingar telja hins vegar hæpið að eldflaugin geti hitt skotmark af mikilli nákvæmni.
Undanfarna mánuði hafa yfirvöld í Pyongyang ítrekað gert kjarnorku- og eldflaugatilraunir sem hafa aukið spennuna á Kóreuskaga.
Að sögn yfirvalda í Suður-Kóreu var flauginni skotið á loft klukkan 9:40 að staðartíma, klukkan 00:40 að íslenskum tíma, og flaug hún í um það bil 930 km áður en hún hafnaði í hafinu. Hafsvæðið er að sögn Japana í þeirri lögsögu.
Rússar og Kínverjar hafa hvatt Norður-Kóreu til að hætta eldflauga- og kjarnorkutilraunum. Xi Jinping, forseti Kína, fundaði með Vladimír Pútín Rússlandsforseta vegna málsins í Moskvu í dag.