Afar, ömmur, barnabörn og fleiri ættingjar bandarískra ríkisborgara sem koma frá sex ríkjum þar sem meirihluti íbúa er múslímar geta nú fengið landvistarleyfi í Bandaríkjunum. Er þetta í samræmi við dóm sem féll á Havaí á dögunum, þar sem komist var að niðurstöðu um að ferðabann Donalds Trumps Bandaríkjaforseta væri of þröngt.
Reuters fréttastofan greinir frá þessu og segir þetta hafa komið fram í minnisblaði frá Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til sendiráða ríkisins.
Dómarinn Derrick Watson sagði í dómi sínum síðastliðinn fimmtudag að hugtakið „náinn ættingi“ væri skilgreint of þröngt í ferðabanninu. Afar, ömmur, barnabörn og fleiri ættingjar ættu líka að falla undir hugtakið, ólíkt því sem ríkisstjórn Trump hafði gefið út.
Ríkin sex sem ferðabannið nær til eru Íran, Líbía, Sýrland, Sómalía, Súdan og Jemen. Þá ná þær til allra flóttamanna. Bannið hefur í för með sér að einstaklingar sem ekki eiga „nána fjölskyldumeðlimi“ í Bandaríkjunum eða eiga viðskiptahagsmuna að gæta geta átt erfitt með að komast inn í landið.
Watson sagði í dómi sínum að ríkisstjórn Trumps hefði túlkað dóm Hæstaréttar Bandaríkjanna of þröngt, en rétturinn sagði í síðasta mánuði að stjórnvöldum væri heimilt að framfylgja banninu, nema í þeim tilvikum þegar um væri að ræða einstaklinga sem hefðu sannarlega lögmæt tengsl við Bandaríkin.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum ákváðu hins vegar að skilgreina hugtakið „náinn ættingi“ og undanskilja ömmur og afa, frændur og frænkur og barnabörn. Watson sagði þetta ekki vera í samræmi við dóm æðsta réttarins og því mætti ekki banna þessum ættingjum að koma inn í landið vegna bannsins.
Fordæmdi hann skilgreiningu ríkisstjórnarinnar og sagði hana „óhóflega takmarkandi“.
Hæstiréttur Bandaríkjanna er enn að meta hvort bannið í heild sinni standist lög og reglur í landinu, en rétturinn leyfði í síðasta mánuði tímabundið bann þar til hann kæmist að endanlegri niðurstöðu.
Trump hefur sagt að takmarkanirnar séu nauðsynlegar til að halda Bandaríkjunum öruggum og koma í veg fyrir hryðjuverkaárásir.