Ísraelar hafa fjarlægt umdeild málmleitarhlið sem þeir settu upp við Al-Aqsa-moskuna í austurhluta Jerúsalem. Hliðinu var ætlað að koma í veg fyrir að vopnum yrði smyglað inn á svæðið að sögn Ísraela. Hliðið girti einnig af hæð sem gyðingar kalla Temple Mount og múslimar Haram al-Sharif. BBC greinir frá.
Blóðug átök hafa verið milli Ísraela og Palestínumanna undanfarið og hafa þrír Ísraelar verið stungnir til bana og þrír Palestínumenn létust nýverið. Vaxandi ólga og spenna er milli hópanna og eru átökin þau mestu sem sést hafa undanfarin ár.
Ákvörðun um að taka hliðið niður var tekin seint í gær og strax var hafist handa í nótt.
Alþjóðasamfélagið hefur þrýst á að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna komi saman í kjölfar ófriðar í Jerúsalem til að stilla til friðar.