George Pell, kardínáli og fjármálastjóri Páfagarðs, neitar sök í kynferðisbrotamáli sem hann er sóttur til saka fyrir í heimalandi sínu Ástralíu. Pell, sem er 76 ára gamall, er sakaður um fjölda kynferðisbrota gegn börnum þegar hann starfaði sem prestur í Ástralíu á árum áður. BBC greinir frá.
Pell mætti í dag fyrir dómi í Melbourne og fékk fylgd lögreglu því fjölmargir mótmælendur og fjölmiðlar voru við dómshúsið. Málið verður tekið fyrir næst 8. september og dómur kveðinn upp 6. október.
Pell hefur haldið fram sakleysi sínu frá því málið kom fyrst upp. Hann var sendur í leyfi frá störfum sínum í Páfagarði í síðasta mánuði en hann hefur starfað náið með Frans páfa I. Páfagarður hefur lýst yfir fullum stuðningi við hann.
Fréttaskýring mbl.is: Níðingsverk í skjóli kirkjunnar