Rússar gagnrýna viðskiptabann gegn Rússlandi, Íran og Norður-Kóreu sem fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær. Bannið er ekki til þess fallið að bæta samskipti milli landanna heldur þvert á móti. Þetta sagði Sergei Ryabkov, varautanríkisráðherra Rússlands.
Mikill meirihluta þingmanna greiddi atkvæði með því eða 419 og þrír gegn. Í viðskiptabanninu taka nýjar og strangari refsiaðgerðir gildi gegn ríkjunum.
Frumvarpið verður nú sent öldungadeild Bandaríkjaþings til umfjöllunar. Talið er líklegt að þar verði ekki allir á einu máli um hvort viðskiptabannið eigi einnig að ná yfir refsiaðgerðir gegn Norður-Kóreu.
Rússar þrýsta á Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, um að samþykkja ekki lögin. Þeir hyggjast hins vegar halda að sér höndum og láta tilfinningarnar ekki hlaupa með sig í gönur heldur bíða og sjá hvernig Trump bregst við.