Uppstokkun verður í sænsku ríkisstjórninni og munu nýir ráðherrar taka sæti í stað annarra sem víkja eða skipta um hlutverk. Þetta tilkynnti Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, á blaðamannafundi sem ríkisstjórn hans boðaði til nú í morgun. Fundurinn var sýndur í beinni útsendingu í sænska ríkisútvarpinu SVT.
Uppstokkunin kemur í kjölfar þess að stjórnarandstaðan lagði í gær fram vantrauststillögu gegn þremur ráðherrum stjórnarinnar vegna upplýsingaleka.
Á fundinum kvaðst Löfven hafa velt fyrir sér ýmsum möguleikum en hann leitist við að fara þá leið sem best sé fyrir Svíþjóð, nú séu ólgutímar í alþjóðasamfélaginu og nefndi hann í því samhengi alþjóðaöryggismál og Brexit. Kvaðst hann ekki vilja stefna Svíþjóð í stjórnarkreppu.
Þeir ráðherrar sem stjórnarandstaðan lýsti yfir vantrausti á voru þau Peter Hultqvist varnarmálaráðherra, Anders Ygemann innanríkisráðherra og Anna Johansson, ráðherra innviða.
Thomas Eneroth mun taka við embætti innviðaráðherra og Morgan Johansson verður innanríkis- og dómsmálaráðherra í stað Ygemans. Þá verður Heléne Fritzon ráðherra innflytjendamála og Annika Strandhäll tekur við sem félagsmálaráðherra.
Hultqvist verður áfram varnarmálaráðherra og sjálfur mun Löfven halda embætti forsætisráðherra. Þá vill Löfven sjá Anders Ygeman sem framkvæmdastjóra þingsins en hann tekur þannig við af Thomasi Eneroth sem tekur við sem ráðherra innviða.
Vantrauststillagan var lögð fram eftir að í ljós kom að Samgöngustofa Svíþjóðar, sem heyrir undir innviðaráðuneytið, hafði lekið persónuupplýsingum og hernaðarleyndarmálum til erlendra verktaka.
Það eru þó viðbrögð ríkisstjórnarinnar við lekanum, frekar en lekinn sjálfur, sem vakið hafa gagnrýnina, en fjölda ráðherra var kunnugt um hann án þess að aðhafast neitt.
Í gær funduðu ráðherrar í stjórnarráðinu fyrir luktum dyrum. Löfven hefur verið sagður eiga fáa kosti í stöðunni, annaðhvort yrði hann að boða til nýrra kosninga eða þá að víkja ráðherrum sínum úr embætti.
Fréttin verður uppfærð.