Hin tvítuga Michelle Carter á yfir höfði sér tuttugu ára fangelsisvist, en hún var í júní fundin sek um manndráp af gáleysi eftir að hafa hvatt kærasta sinn, Conrad Roy III, til sjálfsvígs með smáskilaboðum. Refsing hennar verður ákvörðuð í dag.
Fyrir þremur árum fannst Roy látinn í bíl sínum á bílastæði við verslun í Fairhaven í Massachusetts-ríki. Dánarorsökin var koltvísýringseitrun. Carter hafði sent Roy hundruð skilaboða þar sem hún hvatti hann til að taka eigið líf.
„Þetta er rétti tíminn og þú ert tilbúinn... gerðu það bara ástin,“ skrifaði Carter meðal annars í skilaboðum sem hún sendi Roy sama dag og hann tók eigið líf. „Ég elska þig. Dreptu þig,“ skrifaði hún jafnframt.
Faðir stúlkunnar, David Carter, hefur biðlað til dómarans að gefa dóttur sinni vægasta mögulega dóminn. „Ég bið til Guðs að þú munir taka til greina að Michelle var vandræðaunglingur og viðkvæm í mjög erfiðum aðstæðum og gerði hræðileg mistök,“ skrifaði hann í bréfi til dómarans.
Sagðist hann jafnframt vona að hún fengi aðeins skilorðsbundinn dóm og yrði gert að fara í sálfræðimeðferð. „Ég er 100 prósent viss um að hún hafi verið að gera það sem hún taldi rétt fyrir Conrad,“ skrifaði faðirinn.
Lawrence Moniz, dómari í málinu, sagði í júní að Carter væri sek um „grimmilega og gáleysislega hegðun“. Í smáskilaboðunum hafði hún skipað Roy að fara aftur inn í bílinn sinn og fremja sjálfsmorð en Roy hafði stígið út úr bílnum því hann hafið hætt við og haft samband við kærustu sína.