Donald Trump Bandaríkjaforseti segist nú íhuga hernaðaríhlutun vegna aukins hættuástands í Venesúela. Hann segir ástandið í landinu vera „mjög hættulega óreiðu.“
„Við höfum marga möguleika varðandi Venesúela, þar af hernaðar möguleika ef til þarf,“ segir Trump við fjölmiðla í New Jersey.
„Við erum með hermenn út um allan heim á stöðum sem eru langt í burtu. Venesúela er ekki mjög langt í burtu og fólkið þar þjáist og er deyjandi.“
Bandaríkin hafa sett viðskiptabönn á landið og Trump hefur kallað Nicolás Maduro, forseta Venesúela, einræðisherra. Stjórnvöld í Venesúela hafa svarað með því að segja Bandaríkin „gera sig að fífli fyrir framan allan heiminn.“
Trump segir ástandið í Venesúela hafa verið á meðal umræðuefna á fundi sem hann stjórnaði í New Jersey á föstudag. „Venesúela er óreiða. Mjög hættuleg óreiða og ástandið er mjög dapurt,“ segir hann.