Vladimir Padrino, varnarmálaráðherra Venesúela, hefur vísað ummælum Donalds Trump Bandaríkjaforseta um mögulega hernaðaríhlutun í landinu til föðurhúsanna. Hann segir þau „bera vott um brjálæði og ofstæki“.
„Það er ofstækisfull elíta sem stjórnar Bandaríkjunum og satt best að segja veit ég ekki hvað er að gerast og hvað mun gerast í veröldinni,“ sagði Padrino.
„Sem hermaður, í samstarfi við FANB (her Venesúela) og almenningi í landinu er ég viss um að verðum öll fremst í flokki við að verja hagsmuni og fullveldi okkar heittelskuðu þjóðar," bætti hann við.
Þrír dagar eru liðnir síðan bandarísk stjórnvöld beittu viðskiptaþvingunum gegn Venesúela vegna stjórnlagaþings sem var sett á fót í síðustu viku sem Hvíta húsið telur að muni auka einræðistilburði forseta Venesúela, Nicolas Maduro.
Stjórnvöld í Venesúela brugðust við því með því að segja að Bandaríkin væru að „gera sig að fífli fyrir framan allan heiminn“.
Maduro segir stjórnlagaþingið nauðsynlegt til að stuðla að friði í landinu eftir nokkurra mánaða óróleika.