Steven Bannon, einn helsti ráðgjafi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, gagnrýndi hvíta þjóðernissinna og kallaði þá trúða í óvæntu samtali sem hann átti við blaðamann stjórnmálavefsins American Prospect.
Bannon stýrði hægriöfgafréttaveitunni Breitbart áður en hann hóf að starfa fyrir Trump og er af mörgum talinn einn helsti áhrifavaldur á þjóðernisstefnu forsetans, auk þess að hafa með því fylgi sem hann nýtur hjá hægriöfgasinnum átt sinn þátt í að Trump sigraði í forsetakosningunum.
Í samtali sínu við American Prospect, sem Bannon hringdi óvænt í, sagði hann „kynþátta-þjóðernissinna vera aumingja“. Trump hefur sætt mikilli gagnrýni undanfarna daga fyrir að fordæma ekki mótmæli hægriöfgamanna í Charlottesville um síðustu helgi sem kostuðu a.m.k. þrjá lífið. Trump hefur líka verið hvattur til að reka Bannon, vegna þeirra áhrifa sem hann er sagður hafa á forsetann og tengsla hans við hægriöfgamenn.
Trump hefur hins vegar ekki viljað tjá sig um það hvort hann beri enn traust til Bannons og hafði Reuters raunar eftir heimildamanni í Hvíta húsinu í gær að Trump væri hræddur við að reka Bannon.
Í viðtalinu við bandaríska tímaritið var Bannon spurður hvort tengsl væri milli þeirrar efnahagslegu þjóðernisstefnu sem hann aðhyllist og þeirra hvítu þjóðernissinna sem mótmælt hafa í Charlottesville.
„Kynþátta-þjóðernissinnar (e. ethno-nationalism) – þetta eru aumingjar,“ sagði Bannon. „Þetta er jaðarhópur. Ég held að fjölmiðlar geri of mikið úr þessu. Við verðum að aðstoða við að brjóta þetta á bak aftur – þú veist eyða þessu enn frekar,“ bætti hann við. „Þessir gæjar eru samansafn trúða.“
Bannon hefur áður reynt að skapa fjarlægð milli sín og kynþátta-þjóðernissinna með því að segja áhuga sinn á þjóðernisstefnu eiga rætur í neikvæðum afleiðingum hnattvæðingar.
Í viðtalinu tjáði Bannon sig einnig um málefni Norður-Kóreu, en Trump hefur hótað norðurkóreskum stjórnvöldum eldi og brennisteini láti þau verða af hernaðaraðgerðum sínum. Bannon sagði hins vegar enga hernaðarlega lausn á kjarnorkuáætlun Norður-Kóreu.
„Allt þar til einhver leysir þann hluta reikningsdæmisins sem sýnir mér að 10 milljónir íbúa í Seúl muni ekki deyja á fyrsta hálftímanum vegna notkunar hefðbundinna vopna veit ég ekki hvað þú ert að tala um. Það er engin hernaðarlausn hér,“ sagði hann.