Á annað hundrað látist í ökutækjaárásum

Sendiferðabíll var notaður til að keyra á fólk á Römblunni …
Sendiferðabíll var notaður til að keyra á fólk á Römblunni í gær. AFP

Öku­tæki hafa verið notuð sem vopn í hryðju­verka­árás­um víðs veg­ar um Evr­ópu á síðustu árum. Að minnsta kosti 14 manns lét­ust og yfir 100 særðust þegar sendi­bíl var ekið á hóp fólks á Römblunni í Barcelona í gær. Þetta er sjötta árás­in af þessu tagi í Evr­ópu á einu ári og hafa alla­vega 165 manns lát­ist og nokk­ur hundruð manns særst í árás­un­um.

Bif­reið var ekið á hóp fólks í borg­inni Nice í Frakklandi í júlí í fyrra. Þá var sam­bæri­leg árás gerð á jóla­markað í Berlín í des­em­ber, auk árása af slíku tagi í Stokk­hólmi og London fyrr á ár­inu.

Árið 2004 var gerð hryðju­verka­árás í Madríd, höfuðborg Spán­ar, þar sem 191 lést þegar sprengj­ur sprungu í fjór­um lest­um.

Lög­regl­an í Katalón­íu á Spáni leit­ar nú að hinum 17 ára gamla Moussa Ouka­b­ir, sem tal­inn er vera ökumaður sendi­ferðabíls­ins sem ekið var á hóp fólks á Römblunni í Barcelona í gær. Hann er tal­inn hafa flúið af vett­vangi á öðrum bíl. 

Hryðju­verka­sam­tök­in Ríki íslams lýstu árás­inni fljót­lega á hend­ur sér. Undafarið hafa hryðju­verka­sam­tök­in gert árás­ir í Evr­ópu í þeim lönd­um sem hafa beitt sér gegn Ríki íslams í Sýr­landi og Írak.

Í frétt dag­blaðsins In­depend­ent er bent á að fram að þessu hafi Spánn ekki verið talið lík­legt til að vera of­ar­lega á lista sam­tak­anna yfir þau lönd sem þau hyggj­ast ráðast á. Sér­stak­lega í ljósi þess að Spánn hef­ur ekki beitt sér gegn Ríki íslams í Sýr­landi og Írak með sam­bæri­leg­um hætti og Banda­rík­in og Frakk­land hafa gert.    

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert
Loka