Um 500 nýnasistar ganga í dag í Berlín til heiðurs því að 30 ár séu liðin frá dauða nasistaforingjans Rudolfs Hess. Inquirer greinir frá því að aðrir 500 séu mættir til að mótmæla nýnasistunum en fjöldinn gæti farið upp í þúsund manns.
Hundrað þungvopnaðir lögreglumenn fylgjast með göngunni og gæta þess að allt fari friðsamlega fram. Lögregla hefur bannað skipuleggjendum göngunnar að lofsyngja Hess.