Danska lögreglan greindi frá því nú í kvöld að kvenmannslíkið sem hún fann úti fyrir Amager nú í kvöld sé sundurlimað. Bæði vanti höfuð, fætur og handleggi og því hafi ekki verið borin kennsl á hver konan sé.
Jyllands Posten hefur eftir lögreglu að líkið hafi legið í sjónum „í nokkurn tíma“.
Lögregla segir of snemmt að segja hvort um sé að ræða líkið af sænsku blaðakonunni Kim Walls.
Í morgun greindi lögreglan í Kaupmannahöfn frá því að Peter Madsen, eigandi og skipstjóri kafbátsins, sem situr í gæsluvarðhaldi vegna andláts Walls, hafi sagt Wall hafa látist af slysförum um borð og að hann hafi hent henni fyrir borð einhvers staðar í Køge-flóa.
Danskir kafarar hafa leitað að Wall í dag. Það var svo um hálffjögurleytið í dag sem greint var frá því að lík konu hafi fundist í sjónum suðvestur af Amager. Hafa danskir fjölmiðlar greint frá því í dag að stórt svæði á ströndinni hafi verið girt af.
Það var hjólreiðamaður sem fann líkið í sjónum og lét lögreglu vita. Kafarar hafa nú verið sendir til leitar þar sem búkurinn fannst, en búið er að senda líkið til réttarmeinafræðings í krufningu.