Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hvetur aðdáendur ameríska fótboltans til að sniðganga leiki í NFL-deildinni til að þrýsta á eigendur liðanna að reka eða víkja liðsmönnum úr liðum sem sýna bandaríska fánanum óvirðingu. AFP-fréttastofan greinir frá.
Forsagan er sú að á fjöldafundi í Alabama á föstudag lét forsetinn þessi orð falla: „Mynduð þið ekki vilja sjá einhvern af þessum NFL-leikmönnum, sem vanvirða fánann, rekinn? Ef eigendur liðanna myndu bara segja: „Burt með þennan tíkarson af vellinum strax, hann er rekinn.““
Vísaði Trump þar til mótmæla sem NFL-leikmaðurinn Colin Kaepernick hóf á síðasta ári til að vekja athygli á kynþáttafordómum. Kaepernick neitaði að standa á fætur þegar þjóðsöngurinn var spilaður. Síðan þá hafa fleiri farið að fordæmi hans og annað hvort neitað að standa á fætur eða steytt hnefann á meðan þjóðsöngurinn er spilaður.
Nokkrir leikmenn í NFL-deildinni hafa svarað Trump fullum hálsi, sem og leikmenn NBA-deildarinnar í körfubolta. Stephen Curry, liðsmaður Golden State Warriors, neitaði til að mynda að mæta í boð í Hvíta húsinu vegna málsins, og dró Trump boð til annarra liðsmanna til baka í kjölfarið.
„Ef aðdáendur NFL-deildarinnar neita að mæta á leiki þangað til leikmenn hætta að vanvirða fánanna okkar og landið, þá munum við fljótt sjá breytingar á þessu. Rekið eða víkið leikmönnunum úr liðunum!“ skrifaði forsetinn í nýjustu færslu sinni á Twitter um málið.
If NFL fans refuse to go to games until players stop disrespecting our Flag & Country, you will see change take place fast. Fire or suspend!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) September 24, 2017