Tala látinna í skotárás í Las Vegas er komin upp í 59 manns og 527 manns eru særðir. Á heimili ársármannsins Stephen Paddock í Nevada fundust 18 skotvopn, sprengiefni og nokkur þúsund skot ásamt rafmagnsbúnaði sem verður skoðaður nánar. Þetta staðfesti Joseph Lombardo lögregluvarðstjóri.
Fregnir hafa borist um að að minnsta kosti tíu rifflar hafi fundist á hótelherbergi hans en þær hafa ekki verið staðfestar.