Yfir 40 stéttarfélög og félagasamtök í Katalóníu á Spáni standa fyrir allsherjarverkfalli í dag. Verkfallið er liður í mótmælum gegn lögreglu sem réðst til atlögu gegn ólöglegum kosningum um sjálfstæði héraðsins á sunnudag.
Mótmælendur hafa safnast saman á götum úti og hindra að umferð komist í gegn um helstu gatnamót í Barcelona. Almenningssamgöngur liggja að mestum hluta niðri vegna verkfallsins.
Í frétt BBC kemur fram að minnsta kosti 24 vegatálmum hefur verið komið upp í Katalóníu sem valda miklum umferðartöfum. Þá er engin umferð um höfnina í Barcelona.
Flugvöllurinn í Barcelona, El Prat, er enn starfhæfur og leigubílstjórar mættu til starfa, en komast lítið áfram í umferðinni.
Mörg smærri fyrirtæki eru lokuð í dag og grunnskólar og háskólar eru ýmist lokaðir eða veita lágmarksþjónustu. Heilbrigðisþjónusta er sömuleiðis af skornum skammti.
Kallað var eftir verkfallinu á sunnudag. Í yfirlýsingu frá UGT og CCOO, stærstu stéttarfélögum Spánar, frjálsu félagasamtökunum ANC og rúmlega 40 öðrum samtökum eru „gróf brot á réttindum og frelsi“ nefnd sem megin ástæður verkfallsins.
Um 900 manns slösuðust í átökunum sem brutust út milli kjósenda og lögreglu á kjördag og hafa yfirvöld á Spáni verið harðlega gagnrýnd fyrir framgöngu spænsku óeirðarlögreglunnar. Lögreglan skaut meðal annars gúmmíkúlum í átt að almenningi og þá sáust lögreglumenn draga konur á hárinu inn á lögreglustöð. 33 lögreglumenn slösuðust í átökunum.