Um 350 þúsund manns komu saman í Barcelona í morgun til að mótmæla sjálfstæði Katalóníu, að sögn lögreglunnar. Skipuleggjendur mótmælanna segja aftur á móti að á bilinu 930 til 950 þúsund manns hafi tekið þátt í mótmælunum.
Aðskilnaðarsinnar í Katalóníu hafa heitið því að lýsa yfir sjálfstæði síðar í vikunni eftir þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir viku síðan sem spænsk stjórnvöld segja ólöglega.
Mótmælin í morgun voru skipulögð af Societat Civil Catalana sem eru helstu samtökin sem eru mótfallin sjálfstæði héraðsins.
Nýlegar skoðanakannanir hafa sýnt að Katalónar skiptast í tvo hópa varðandi sjálfstæði.