Stjórnvöld á Spáni íhuga nú að gera breytingar á stjórnarskrá landsins sem geri héruðum Spánar kleift að greiða í framtíðinni atkvæði um eigið sjálfstæði. Þetta hefur BBC eftir Alfonso Dastis, utanríkisráðherra Spánar.
Eru spænsk stjórnvöld með þessu sögð vera að bregðast við atburðum undanfarinna vikna í Katalóníu, þar sem héraðsstjórnin var sett af í kjölfar þess að hafa einhliða lýst yfir sjálfstæði.
Átta af leiðtogum héraðsstjórnarinnar eru nú í fangelsi á meðan að yfirvöld í Madrid rannsaka hvort þeir hafi gerst sekir um uppreisn og uppreisnaráróður í tengslum við sjálfstæðisyfirlýsinguna, sem stjórnarskrá Spánar leggur bann við.
„Við höfum komið á fót þingnefnd til að rannsaka möguleikann á því að gera breytingar á stjórnarskránni til að geta mætt betur metnaði sumra íbúa Katalóníu,“ sagði Dastis. „Ákvörðunina sjálfa þurfa hins vegar allir íbúar Spánar að taka.“
Spænska stjórnin tók yfir stjórn Katalóníuhéraðs í kjölfar sjálfstæðisyfirlýsingarinnar og tilkynnti í kjölfarið að ný héraðsstjórn yrði kosin í 21. desember. Hvatti Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, til þess að Katalóníubúar flykktust á kjörstað svo Spánn geti komist út úr núverandi ógöngum.
Sagði Rajoy, Carles Puigdemont sem var leiðtogi Katalóníu áður en héraðsstjórnin var sett af, ekki hafa vald til að einhliða lýsa yfir sjálfstæði héraðsins frá Spáni.
„Héraðsstjóri getur ekki úrskurðað að stjórnarskráin gildi ekki á hans svæði. Héraðsstjóri getur ekki búið til hliðstæðan lagaramma,“ sagði Rajoy.
Puigdemont gaf sig um helgina fram við lögregluyfirvöld í Belgíu eftir að spænskur dómari gaf út evrópska handtökuskipun á hendur honum á föstudag.
Hann hefur að undanförnu dvalið í Belgíu eftir að spænska stjórnin vék honum úr embætti og hefur ekki vilja snúa aftur til Spánar nema hann hljóti sanngjörn réttarhöld.