Franska þingið hefur svipt Marine Le Pen þinghelgi. BBC greinir frá þessu.
Le Pen, sem er formaður frönsku Þjóðfylkingarinnar (Front National), birti árið 2015 myndir á Twitter aðgangi sínum af voðaverkum íslamskra hryðjuverkamanna.
Meðal mynda sem Le Pen birti var af bandaríska blaðamanninum James Foley, sem var hálshöggvinn.
Saksóknarar rannsökuðu myndbirtingar Le Pen og getur hún átt yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi.
Le Pen fetar því í fótspor föður síns og stofnanda Þjóðfylkingarinnar, Jean-Marie Le Pen, sem var sviptur þinghelgi árið 1998 í því skyni að greiða fyrir því hann yrði dreginn fyrir rétt í Þýskalandi fyrir meint andgyðingleg ummæli.
Le Pen brást við sviptingunni á Twitter þar sem hún segir að það sé betra að vera hryðjuverkamaður sem aðhyllist heilagt stríð (e. jihadis) og koma frá Sýrlandi til Frakklands, heldur en að vera þingmaður sem fordæmir ríki Íslam. „Hryðjuverkamaðurinn tekur færri lagalegar áhættur,“ segir í færslu Le Pen.
Mieux vaut être un djihadiste qui rentre de Syrie qu’une députée qui dénonce les abjections de l’Etat islamique : on prend moins de risques judiciaires... MLP
— Marine Le Pen (@MLP_officiel) November 8, 2017