Bosníu-Króatinn Slobodan Praljak, sem tók inn eitur er dómur var kveðinn upp yfir honum í stríðsglæpadómstólnum í Haag í morgun, er látinn. Hann dó á spítala nú fyrir stundu.
Hollenska lögreglan hóf í morgun rannsókn á málinu. „Dómsalur eitt er vettvangur glæps,“ sagði dómarinn Carmel Agius. Hann vildi ekki tjá sig frekar um atburði morgunsins að öðru leyti en því að hollenska lögreglan væri að rannsaka málið.
Dómstóllinn í Haag staðfesti í morgun tuttugu ára fangelsisdóm sem Praljak var dæmdur í fyrir fjórum árum vegna stríðsglæpa í stríðinu í gömlu Júgóslavíu. Praljak var hershöfðingi í her Króata í stríðinu á árabilinu 1992-1995 en hann var 72 ára.
Áður hafði verið greint frá því að Praljak væri á lífi og verið væri að veita honum alla mögulega læknisaðstoð.
Eftir að niðurstaða dómsins var lesin upp í dag, en um lokaáfrýjun málsins var að ræða, sagði hann við dómarann: „Ég hef tekið eitur“ og hrópaði: „Ég er ekki glæpamaður“.
Samkvæmt erlendum miðlum setti Praljak hönd að munni, hallaði höfðinu aftur og gleypti glas með einhverju í en verjandi hans sagði að um eitur væri að ræða.