Ismail Haniya, leiðtogi Hamas á Gasaströndinni, segir að ákvörðun Donalds Trump, Bandaríkjaforseta, um að færa sendiráð Bandaríkjanna til Jerúsalem og viðurkenna að borgin verði höfuðborg Ísraels gæti orðið „hættuleg stigmögnun sem fer yfir öll mörk.“
Trump ræddi við Mahmud Abbas, leiðtoga Palestínu, símleiðis í dag og tilkynnti honum að hann ætlaði sér að flytja bandaríska sendiráðið til Jerúsalem frá Tel Aviv.
Frétt mbl.is: Segist ætla að flytja sendiráðið
Bæði Ísraelar og Palestínumenn segja borgina sína höfuðborg. Orðrómur hefur verið um að Trump ætli sér að viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels líkt og hann hét að gera í kosningabaráttu sinni.
„Flutningur sendiráðsins til Jerúsalem er hættuleg stigmögnun og greiðir öfgasinnaðri stjórn Netanyahu leið til að koma á gyðingdómi í Jerúsalem,“ skrifar Haniya í bréfi til leiðtoga í Miðausturlöndum. Benjamin Netanyahu er forsætisráðherra Ísraels.
Samtök Palestínumanna hafa boðað til mótmæla í gamla borgarhluta Jerúsalem á morgun og hafa stjórnvöld í Washington varað Bandaríkjamenn við að vera þar á ferli.
Búist er við að Trump muni tilkynna ákvörðun sína á morgun, miðvikudag.