Þúsundir komu saman til mótmæla í miðborg Vínar í Austurríki í dag þar sem ný hægristjórn tók við völdum í landinu. Hinn 31 árs gamli Sebastian Kurz, formaður Þjóðarflokksins, tók við völdum sem forsætisráðherra.
„Ekki láta nasistana stjórna,“ var meðal þeirra skilaboða sem mótmælendur komu á framfæri þegar Kurz tók við völdum.
Stjórnarflokkarnir, Þjóðarflokkurinn og Frelsisflokkurinn, hafa í hyggju að herða reglur er varða innflytjendamál en slík mál voru mikið í umræðunni í kosningabaráttunni. Eins hétu þeir að stöðva Evrópusambandið í að hafa of mikil áhrif á málefni Austurríkis og að dregið yrði úr allri skriffinnsku.
Stórt svæði var girt af í kringum ráðuneytisbyggingar í dag en talið er að mótmælendur hafi verið sex þúsund.
Frelsisflokkurinn á rætur sínar að rekja í nasisma og hefur lengst af boðað mikla andstöðu við flóttamenn og hælisleitendur.