Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað því að þau ríki sem greiði atkvæði gegn Bandaríkjunum í atkvæðagreiðslu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna muni eiga á hættu að verða af þróunaraðstoð frá Bandaríkjunum.
Allsherjarþingið mun koma saman á morgun á neyðarfundi. Á dagskrá fundarins er atkvæðagreiðsla um drög að ályktun gegn ákvörðun Trumps að viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels.
Egyptar kröfðust þess að kosið yrði um málið í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og að ákvörðun Trumps yrði afturkölluð. Var það gert á mánudag og samþykktu 14 af 15 ríkjum sem eiga sæti í öryggisráðinu tillögu Egypta en Bandaríkin beittu neitunarvaldi sínu.
„Þau taka við hundruðum milljóna dollara og jafnvel milljörðum dollara og síðan ætla þau að kjósa gegn okkur,“ sagði Trump við fjölmiðlamenn í Hvíta húsinu í dag.
„Leyfum þeim að greiða atkvæði gegn okkur. Við spörum heilan helling á því og okkur er alveg sama,“ bætti Trump við.
Ekkert ríki hefur neitunarvald á allsherjarþinginu, ólíkt því fyrirkomulagi sem ríkir í öryggisráðinu, þar sem fastaríkin fimm, Bandaríkin, Bretland, Kína, Frakkland og Rússland, búa yfir neitunarvaldi.