Vetrarhörkurnar í Bandaríkjunum hafa haft mikil áhrif á margar dýrategundir. Þannig er talað um að skjaldbökurnar undan ströndum Flórída og Texas séu stjarfar af kulda. Starfsmenn bandarísku Haf- og loftslagsstofnunarinnar, NOAA, hafa unnið að björgun tuga þeirra við Texas og sömu sögu er að segja frá norðvesturhluta Flórída.
Skjaldbökurnar eru taldar eiga á hættu að fá lungnabólgu og auk þess missa þær sundfærni sína í kuldanum og eru þar með í meiri hættu á að verða fyrir bátum.
Skjaldbökurnar eru fluttar til og í hlýrri sjó eða upp á land þaðan sem þeim verður sleppt er hitastigið hækkar. „Dýrin eru skoðuð af dýralækni og þau merkt sett í hlýtt vatn. Við búumst við því að sleppa meirihluta þeirra í Mexíkóflóa á næstu dögum,“ segir Secret Holmes-Douglas, starfsmaður samtakanna Gulf World.
Þá hafa margar fréttir borist af því að eðlur hafi eins og misst meðvitund í kuldanum og jafnvel fallið margra metra úr felustöðum sínum af þeim sökum.
It's so cold in Florida right now that iguanas are falling out of trees and perches. https://t.co/uj8pSxfpUm pic.twitter.com/UppmFWbtZU
— CBS News (@CBSNews) January 4, 2018