Dow Jones hlutabréfavísitalan féll um 1.175 stig í dag og er þetta mesta lækkun vísitölunnar á einum degi frá því í fjármálakreppunni 2008, eftir að Bandaríkjaþing hafnaði áætlun um að bjarga bandarísku bönkunum.
BBC segir Dow Jones hafa lækkað um 4,6% og hafi í lok dags verið 24.345.75. Bandarískir fjárfestar séu hér að bregðast við litlum, en þýðingamiklum breytingum á bandarískum efnahag og þeim afleiðingum sem þær kunni að hafa á lántökukostnað.
Fjárfestar horfa nú til þess að aukinn kaupmáttur og hærri laun muni leiða til hækkunar verðlags, sem aftur muni hleypa af stað verðbólgu. Til að hindra það muni seðlabanki Bandaríkjanna þurfa að hækka stýrivexti til að reyna að hafa taumhald á verðbólgunni.
Þetta gerist á sama tíma og Jerome Powell sór embættiseið sem nýr seðlabankastjóri Bandaríkjanna.
Þykir þetta sýna vel áskoranirnar sem hann mun standa frammi fyrir til að viðhalda efnahagsvexti án þess að valda ótta hjá fjárfestum.