Donald Trump Bandaríkjaforseti hringdi í Vladimir Pútín, forseta Rússlands, fyrr í dag til að votta honum samúð sína vegna flugslyssins sem varð í grennd við Moskvu í gær.
Staðfest hefur verið að 71 farþegi og áhöfn sem var um borð í vél á leið frá Moskvu til Orsk fórust þegar vélin hrapaði nokkrum mínútum eftir flugtak frá Domodedovo-flugvellinum í Moskvu í gær.
Talsmaður Hvíta hússins staðfesti símtalið við AFP-fréttastofuna. Rússneskir ráðamenn sögðu að auk þess að hafa rætt flugslysið hefðu forsetarnir rætt friðarferlið í Mið-Austurlöndum.