Útför Hinriks prins fer fram þriðjudaginn 20. febrúar. Lík hans verður brennt. Helmingi öskunnar verður dreift yfir sjó við strendur Danmerkur og hinn helmingurinn verður jarðsettur í einkagrafreit við höllina í Fredensborg. Almennur aðgangur verður ekki að leiðinu að því er segir í fréttatilkynningu frá dönsku konungsfjölskyldunni.
Hinrik, eiginmaður Margrétar Danadrottningar, lést í gærkvöldi, 83 ára að aldri. Hann fékk lungnabólgu í janúar og í kjölfarið far hann greindur með góðkynja æxli í öðru lunganu. Hann var fluttur til hallarinnar í Fredensborg í gærdag þar sem hann lést svo um kvöldið í faðmi fjölskyldu sinnar.
Að ósk Hinriks verða aðeins hans nánustu aðstandendur viðstaddir útförina. Það var einnig hans ósk að hann fengi ekki opinbera útför.
Á morgun verður líki hans ekið frá höllinni í Fredensborg á Norður-Sjálandi til Amalíuborgar. Almenningi gefst tækifæri til að kveðja hann hinstu kveðju því kista hans mun standa í kirkjunni við Kristjánsborgarhöll á laugardag, sunnudag og mánudag.
Margrét drottning heilsaði fólki fyrir utan höllina í Fredensborg í dag en þar hafa hundruð blóma verið lögð í dag í minningu Hinriks. „Þetta er drottningin í hnotskurn,“ segir Trine Larsen, fréttamaður hjá Billed-Bladets sem sérhæfir sig í fréttum af kóngafólkinu. „Að hún hafi styrk til að koma fram, heilsa og brosa svo stuttu eftir fráfall eiginmanns síns.“