Marine Le Pen, leiðtogi franska þjóðernisflokksins Front National, lagði til á flokksþingi í dag að breyta nafni flokksins í Rassemblement National, úr Þjóðfylkingu í Þjóðarbandalag. Er þetta liður í tilraun hennar að bæta ímynd flokksins.
Hún lagði þetta til í dag en kosið verður um tillöguna síðar í dag á flokksþinginu í Lille. Hún var endurkjörinn formaður flokksins í þriðja sinn í morgun.
Flokkurinn var nefndur Front National við stofnun hans árið 1972 en það var faðir Marine, Jean-Marie Le Pen, sem stofnaði flokkinn og gaf honum nafn. Hann var sviptur heiðursnafnbót flokksins á þinginu í dag en hann var rekinn úr flokknum fyrir tveimur árum vegna ummæla sinna um helförina.
Fylgi flokksins hefur dregist mjög saman en Marine Le Pen komst í seinni umferð forsetakosninganna í fyrra en tapaði fyrir Emmanuel Macron og í raun fékk hún mun minna fylgi en búist hafði verið við.
Steve Bannon, fyrrverandi aðalstjórnmálaráðgjafi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, tók þátt í flokksþinginu um helgina og ávarpaði gesti þess í gærkvöldi. Sagði hann að sagan væri með þeim í liði. Þykir vera hans á þinginu vera til marks um tengsl kosningabaráttu Trumps og franska þjóðernisflokksins en skoðanir Trumps og Le Per eru áþekkar í mörgum málum. Má þar nefna óvild í garð íslam, innflytjenda og Evrópusambandsins. Eins eru svipaðar skoðanir á Rússlandi og vöruskiptum. Trump var einn af stuðningsmönnum Le Pen þegar hún reyndi að verða forseti Frakklands. Sama á við um Vladimír Pútín, forseta Rússlands.
„Leyfum þeim að kalla ykkur rasista, leyfum þeim að kalla ykkur útlendingahatara. Leyfum þeim að kalla ykkur þjóðernissinna. Berið þetta eins og viðurkenningarskjöld. Því á hverjum degi verðum við sterkari og þau verða veikari,“ sagði Bannon meðal annars í ræðu sinni.
Ráðherra í málefnum þingsins, Christophe Castaner, sem er einn helsti bandamaður Macron innan flokks hans, La République/En Marche!, sagði í gærkvöldi að það hafi ekki komið á óvart að konungi falskra frétta og hvítra öfgasinna hafi verið boðið á flokksþing FN. „Breyttu um nafn en ekki stefnu,“ sagði hann.