Maður er í lífshættu eftir skotárás í bílakjallara við Seterbråtveien í úthverfi Óslóar, Bjørndal. Árásin átti sér stað snemma í morgun að sögn lögreglu.
Þegar lögreglan kom á vettvang var maðurinn meðvitundarlaus og var hann fluttur með hraði á Ullevål sjúkrahúsið, segir varðstjóri í lögreglunni, Brian Skotnes, í samtali við Aftenposten.
Lögreglan telur að maðurinn hafi ekki legið lengi þarna þegar lögregla kom á vettvang. Áverkar mannsins eru eftir skotvopn en einnig er hann með fleiri áverka að sögn lögreglu.
Í nótt hafði lögreglan afskipti af þremur mönnum þar sem skotvopnum hafði verið beitt í Lambertseter. Enginn særðist. Ekki er vitað hvort tengsl eru á milli málanna en það er eitt af því sem lögreglan rannsakar, samkvæmt frétt Aftenposten.
Maðurinn er búsettur í nágrenni þess staðar þar sem hann fannst og var hann með erlend persónuskilríki á sér þegar hann fannst.
#Oslo Det har vært en hendelse på Bjørndal hvor en person er skutt. Uvisst skadeomfang på vedkommende. Vi jobber på stedet - vil komme tilbake med mer når vi har det.
— OPS Politiet Oslo (@oslopolitiops) March 12, 2018