Fulltrúi Bandaríkjanna í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna sagði að Rússar bæru ábyrgð á morðtilræðinu á Skripal-feðginunum. Þeim var byrlað eitur 4. mars og liggja þau þungt haldin á sjúkrahúsi.
„Bandarísk stjórnvöld telja að Rússar beri ábyrgð á árásinni á þessum tveimur manneskjum í Bretlandi þar sem taugaeitur var notað,“ sagði Nikki Haley, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum.
„Við verðum að grípa til aðgerða þegar í stað. Annars verður þetta ekki í síðasta skiptið sem við sjáum árás af þessu tagi,“ bætti Haley við.
Bresk stjórnvöld vísuðu í dag 23 rússneskum erindrekum úr landi. Rússar segja það til marks um að Bretar vilji ágreining við Rússa og þeir muni verða fljótir að svara fyrir sig.