Aldagamlar stórkostlegar og einstakar byggingar hafa verið jafnaðar við jörðu. Markaðstorgin sem áður iðuðu af lífi eru mannlaus. Skólar, sjúkrahús og vegir hafa verið sprengdir í tætlur. Stríðið í Sýrlandi sem hefur í dag geisað í sjö ár hefur skilið eftir sig hamfarakennda eyðileggingu.
Orrusturnar hafa verið háðar í sveitum, borgum og bæjum. Eftir að þeim lýkur, til dæmis í Aleppo, Homs og Raqqa, hefur átakanleg auðnin blasað við. Nær engin enduruppbygging af hálfu stjórnvalda er hafin á þeim svæðum þar sem hávaðinn frá sprengjunum hefur hljóðnað. Hins vegar reyna íbúarnir sem eftir eru að púsla saman brotum húsa sinna svo þeir hafi skjól.
Uppbyggingin strandar meðal annars á því að erlend ríki og hjálparsamtök eru hikandi við að afhenta stjórn Assads-forseta peninga til uppbyggingarinnar. Þau óttast að þeir fjármunir færu beint í stríðsreksturinn.
Austurhluti Ghouta-héraðs er eitt nýjasta skotmark loftárásanna. Svæðið var áður kallað Edengarðurinn. Nú er því líkt við hlið helvítis.
Borgin Aleppo, sem eitt sinn var miðja viðskiptalífs Sýrlands, er aðeins skugginn af sjálfri sér eftir blóðugar orrustur síðustu ára. Þúsundir létust í átökunum þar og mjög margir lögðu á flótta. Stjórnarherinn náði borginni á sitt vald í desember árið 2016. Einhver uppbygging hefur þar átt sér stað að frumkvæði íbúanna sjálfra sem snúið hafa aftur til rústa heimila sinna. Gamli borgarhlutinn, sem er á heimsminjaskrá UNESCO, varð hvað verst úti í árásunum. Þar var m.a. moska frá 12. öld nær jöfnuð við jörðu.
Borgin Homs er sú þriðja stærsta í Sýrlandi. Hún var kölluð borg hvítra og svartra steina vegna eintaks byggingarstíls. Í henni var að finna kirkjur jafnt sem moskur og bænahús annarra trúarbragða. Flest var þetta eyðilagt í ofsafengnum bardögum sem enduðu með því að herir Assads náðu þar völdum árið 2014. Lítil sem engin uppbygging er hafin í Homs.
Borgin Raqqa var höfuðvígi Ríkis íslams í Sýrlandi. Hópum uppreisnarmanna með hernaðarlegum stuðningi Bandaríkjamanna tókst að ná henni á sitt vald í október í fyrra. Á þeim fjórum árum sem vígamenn Ríkis íslams fóru þar með völd voru margar menningarminjar eyðilagðar. Fátt blasir þar við í dag annað en rústir.
Hér að neðan er að finna yfir 20 myndir af eyðileggingunni eftir sjö ára stríð í Sýrlandi.