Íbúar í Austur-Evrópu hafa margir hverjir rekið upp stór augu vegna snjókomu sem er appelsínugul að lit. Íbúar hafa birt myndir á samfélagsmiðlum, m.a. í Rússlandi, Búlgaríu, Rúmeníu og í Moldavíu.
Veðurfræðingar segja að þetta eigi sér eðlilega skýringu, en þarna hefur sandur úr sandstormi sem geisað hefur í Sahara-eyðimörkinni í Norður-Afríku blandast saman við snjókomu og riginingu, að því er segir á vef BBC.
Þetta gerist á um það bil fimm ára fresti, en að þessu sinni er magn og þéttleiki sandsins mun meiri en vanalega. Sumir hafa kvartað yfir því að hafa fengið sand í munninn.
Skíða- og snjóbrettakappar skammt frá rússnesku borginni Sochi eru á meðal þeirra sem hafa birt ljósmyndir af þessu óvenjulega fyrirbæri.
'Orange snow' baffles eastern Europeans https://t.co/w4u4G8RF0s
— BBC News (World) (@BBCWorld) March 25, 2018