Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hrósaði í dag hermönnum landsins fyrir að hafa „gætt landamæra ríkisins“, en í gær skutu hermenn ríkisins 16 Palestínumenn til bana eftir umfangsmikil mótmæli við landamæragirðingar ísraelskra stjórnvalda á svæðinu.
Í yfirlýsingu frá Netanyahu sagði hann hermennina hafa staðið sig vel og að Ísrael myndi bregðast við af staðfestu til að verja fullveldi sitt og öryggi íbúa landsins.
Tugir þúsunda Palestínumanna tóku þátt í mótmælunum og særðust hundruð til viðbótar við þá sé létu lífið. Um er að ræða mannskæðustu átök sem orðið hafa á Gaza frá árinu 2014.
Ísraelsher gerði árásir á þrjár bækistöðvar Hamas-samtakanna á Gaza-ströndinni með skotum úr skriðdrekum og úr lofti. Sagði herinn um að ræða andsvar við árásartilraun á hermenn við landamærin.
Fyrr í dag var greint frá því að Antonio Guterres, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, vildi að framkvæmd yrði óháð og gegnsæ rannsókn á því mannfalli sem varð. Ekki náðist hins vegar samstaða um sameiginlega yfirlýsingu aðildarríkja öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna á neyðarfundi í dag vegna málsins.