Heilsu Barböru Bush, eiginkonu George H.W. Bush og móður George W. Bush fyrrverandi Bandaríkjaforseta, fer hrakandi og hefur hún ákveðið að þiggja ekki frekari læknismeðferð að því er kemur fram tilkynningu frá skrifstofu forsetans fyrrverandi.
Hér eftir mun hún fremur gangast undir líknandi meðferð við veikindum sínum en hún er orðin 92 ára gömul. Ekki kemur fram í tilkynningunni hvers eðlis veikindi hennar eru en hún hafi ítrekað þurft að leggjast inn á spítala sökum þeirra.
Barbara Bush var forsetafrú Bandaríkjanna frá árinu 1989 til 1993 og var hún þekkt fyrir hispursleysi og hnyttni í máli sínu. Sem forsetafrú beindi hún kröftum sínum að því að efla læsi og lestur.