Utanríkisráðherra Frakklands, Jean-Yves Le Drian, segir að mannlegur harmleikur sé yfirvofandi í Idlib-héraði í Sýrlandi en óttast er að þar muni hersveitir stjórnvalda, með stuðningi Rússa, láta til skarar skríða.
Idlib-hérað er enn undir stjórn uppreisnarmanna og í viðtali við vikuritið Le Journal du Dimanche segir Drian að þar séu um tvær milljónir manna. Þar á meðal eru hundruð þúsunda Sýrlendinga sem hafa verið fluttir á brott frá bæjum sem stjórnarherinn hefur náð úr höndum uppreisnarmanna. Hann óttast að von sé á nýjum mannlegum hryllingi í Sýrlandi ekki ósvipuðum þeim sem íbúar Aleppo og Austur-Ghouta þurftu meðal annars að þola. Idlib-hérað er síðasta vígi uppreisnarmanna í Sýrlandi.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna felldi í gær ályktunartillögu Rússa um að ráðið fordæmdi flugskeytaárásirnar, sem gerðar voru á efnaverksmiðjur og rannsóknarstofur í Sýrlandi aðfaranótt laugardags af hálfu Bandaríkjanna, Frakka og Breta. Árásirnar voru gerðar í kjölfar efnavopnaárásar á bæinn Douma í Austur-Ghouta fyrir viku. Bæði bandarísk og frönsk yfirvöld segjast hafa sannanir fyrir því að stjórnvöld í Sýrlandi hafi staðið á bak við árásina og að sarín og klórgasi hafi verið beitt á almenna borgara. Sýrlensk yfirvöld með stuðningi Rússa og Írana neita því að Sýrlandsher hafi staðið á bak við árásina, það er ef nokkur árás var gerð en Rússar segja að engin slík árás hafi verið gerð á almenna borgara.
Háttsettur íranskur embættismaður sagði í Damascus í síðustu viku að hann vonaðist til þess að Idlib væri næsta hérað sem yrði „frelsað“ af forseta Sýrlands, Bashar al-Assad.
Le Drian segist vonast til þess að árásirnar í gær sannfæri Rússa um nauðsyn þess að setjast að samningaborðinu og að binda endi á stríðið sem hefur staðið yfir í rúm sjö ár.
Hann segist vonast til þess að Rússar skilji að ríkin verði að sameina krafta sína til að koma á pólitískum umbótum í Sýrlandi svo hægt verði að binda endi á stríðið.
Frakkar séu reiðubúnir til þess að taka þátt í því starfi og í raun sé Bashar al-Assad sá eini sem standi í veginum fyrir því að hægt verði að koma á friði í Sýrlandi.
Utanríkisráðherra Bretlands, Boris Johnson, segir að loftárásirnar í gær hafi verið gerðar til þess að segja að nú væri nóg komið. Ekki væri um afskipti að öðru leyti að ræða né heldur væri verið að krefjast breytingar á yfirstjórn landsins. En vonandi komi þetta í veg fyrir frekari villimannslegar efnavopnaárásir.