Breski drengurinn Alfie Evans lést á sjúkrahúsi í nótt í kjölfar þess að hann var tekinn úr öndunarvél. Foreldrar hans tilkynntu um þetta í yfirlýsingu. Sú ákvörðun var tekin að lokum af dómstólum eftir langvinna lögfræðideilu.
Fram kemur í yfirlýsingunni, sem birt er á Facebook, að drengurinn hafi látist klukkan 1:30 í nótt að íslenskum tíma. „Barnið okkar fékk vængina sína í nótt [...] Við erum harmi lostin. Takk allir fyrir allan ykkar stuðning.“
Foreldrarnir, Kate James og Thomas Evans, höfðu barist fyrir því að geta farið með son sinn, sem var haldinn taugahrörnunarsjúkdómi, til Ítalíu á læknastöð í Róm en töpuðu dómsmáli þess efnis á miðvikudaginn.