Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, sagði í dag við Mike Pompoe, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, að fyrirhugaður fundur hans og Donald Trump Bandaríkjaforseta yrði „sögulegur.“
Töluvert hefur verið rætt og ritað um hvort N-Kórea hætti öllum kjarnorkutilraunum. Tæplega 20 þingmenn Repúblikanaflokksins hafa sent norsku nóbelsnefndinni bréf þar sem þeir hvetja nefndina til að hafa Trump í huga vegna áhrifa hans í átt að betra andrúmslofti milli ríkjanna á Kóreuskaga.
Norðurkóreska ríkisfréttastofan KCNA hefur eftir Kim að leiðtogafundur hans og Trump verði gott fyrsta skref.
Kim sagðist vonast til þess að fundurinn yrði til þess að bæta stöðuna á Kóreuskaganum og að framtíðin þar væri björt.
Suðurkóreski fjölmiðillinn Yonhap segir að þetta sé í fyrsta skipti sem Kim tjáir sig opinberlega um fyrirhugaðan fund sinn og Trump.