Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að í dag sé „stór dagur fyrir Ísrael“ en flutningur á sendiráði Bandaríkjanna frá Tel Aviv til Jerúsalem stendur nú yfir.
Trump benti á í Twitter-færslu í morgun að sýnt yrði beint frá athöfn vegna sendiráðsflutningsins á Fox-sjónvarpsstöðinni.
U.S. Embassy opening in Jerusalem will be covered live on @FoxNews & @FoxBusiness. Lead up to 9:00 A.M. (eastern) event has already begun. A great day for Israel!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) May 14, 2018
Að minnsta kosti sextán Palestínumenn hafa fallið á Gaza í morgun við landamæragirðingarnar að Ísrael. Þar hafa þúsundir íbúa Gaza safnast saman til að mótmæla flutningi sendiráðsins til Jerúsalem. Ísraelar segja Jerúsalem sína höfuðborg en á alþjóðavísu er það ekki viðurkennt. Það berði Bandaríkjamenn hins vegar nýverið og tilkynntu um flutning sendiráðs síns þangað. Palestínumenn hafa mótmælt því harðlega enda telja þeir sig eiga tilkall til austurhluta borgarinnar.
Síðustu sex vikur hafa staðið yfirmótmæli á Gaza. Ísraelsmenn segja að mótmælendur hafi reynt að brjóta niður girðingarnar sem eru á landamærunum og hafa leyniskyttur skotið á mótmælendur. Meðal þeirra sem féll í morgun var fjórtán ára palestínskur drengur. Meira en fimmtíu Palestínumenn hafa fallið frá því að fjöldamótmælin hófust fyrir sex vikum og þúsundir hafa særst.