Eiginkona bandaríska kylfingsins Lucas Glover var handtekin af lögreglu á laugardagskvöldið eftir harðvítugar deilur við Glover og móður hans. Deilurnar spruttu í kjölfar þess að Glover tókst ekki að komast í gegnum niðurskurðinn á Players Championship.
Krista Glover, 36 ára, var vistuð í fangelsi í Flórída en látin laus gegn 2.500 Bandaríkjadala tryggingu. Þetta kemur fram í frétt Miami Herald. Henni er gert að mæta aftur í réttarsalinn 31. maí þar sem hún verður væntanlega ákærð fyrir heimilisofbeldi og sýndi mótspyrnu við handtöku.
AFP vísar í Miami Herald sem hefur undir höndum afrit af lögregluskýrslunni. Til harkalegra deilna kom á milli hjónanna í húsi sem þau leigja á Flórída eftir lélegan dag hjá Glover á golfvellinum í Ponte Vedra Beach.
Glover tjáði lögreglumönnunum að ef hann standi sig ekki vel á golfmótum í PGA mótaröðinni verði eiginkona hans mjög viðskotaill. Að sögn lögreglu reyndi móðir Glover að skerast í leikinn en var slegin í brjóstið. Enginn slasaðist alvarlega í átökunum.
Glover, sem er 38 ára, fór með málið á Twitter þar sem hann sagðist ekki hafa neinn áhuga á því að eiginkona hans yrði handtekin. „Öllum líður vel,“skrifar hann. Hann segir að það muni koma fram síðar hvað gerðist nákvæmlega og að Krista verði hreinsuð af sök í þessu einkamáli þeirra.
PGA Tour hefur sent frá sér yfirlýsingu um að sambandið sé reiðubúið til þess að veita aðstoð ef þurfa þykir.
Glover-hjónin gengu í hjónaband árið 2011 og eiga tvö börn.
— Lucas Glover (@Lucas_Glover_) May 15, 2018