Íranar munu tilkynna kjarnorkumálastofnun Sameinuðu þjóðanna í dag að þeir séu að hefja ferli til þess að auka getu sína til þess að auðga úran. BBC greinir frá.
Ayatollah Ali Khamenei, æðstiklerkur Írans, segist hafa fyrirskipað undirbúning auðgunar, ef svo kynni að fara að kjarnorkusamningurinn frá 2015 myndi ekki halda.
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði Bandaríkin úr samningnum í síðasta mánuði. Enn er ekki víst hvort Evrópulöndin sem hafa aðild að samningnum muni halda sig við hann.