Evrópuríki sem eiga aðild að hópi G7-ríkjanna, stærstu iðnríkja heims, hafa sammælst um að Rússland fái ekki inngöngu í hópinn að nýju á meðan ástandið í Úkraínu og samskipti ríkjanna eru óbreytt.
„Við erum sammála um að endurkoma Rússlands í G7-hópinn getur ekki átt sér stað fyrr en umtalsverður árangur hefur náðst í deilunni við Úkraínu,“ sagði Angela Merkel, kanslari Þýskalands, í samtali við fjölmiðlafólk á ráðstefnu G7-ríkjanna sem fram fer í Quebec í Kanada í dag og á morgun.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hvatti fyrr í dag til þess að Rússland fengi inngöngu í hóp G7-ríkja á nýjan leik en þeir voru reknir þaðan fyrir fjórum árum eftir að þeir innlimuðu Krímskaga sem áður tilheyrði Úkraínu.
Leiðtogar Evrópuríkjanna í hópnum, það er Þýskalands, Ítalíu, Bretlands og Frakklands, funduðu um tillögu Trumps eftir að hann lagði hana fram.