Handaband þeirra á þjóðhátíðardegi Frakka í júlí vakti heimsathygli enda virtist sem hvorugur vildi sleppa og sýna veikleikamerki. Alls héldust þeir í hendur í 29 sekúndur á þeim tíma. En nú virðist annað vera upp á teningnum þegar þeir Donald Trump og Emmanuel Macron hittust á leiðtogafundinum í Kanada.
Svo virðist sem forseti Frakklands snúi upp á hönd starfsbróður síns í Bandaríkjunum af fullu afli á myndum sem fara nú eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla heimsins. Á annarri mynd séstTrump, sem er 71 árs, kveinka sér undan þéttu handartakiMacron, sem er fertugur að aldri.
AFP líkir sambandi þeirra tveggja við rússíbanareið allt frá því þeir hittust í fyrsta skipti í fyrra. Þrátt fyrir að Macron hafi hlotnast sá heiður að heimsækja forseta Bandaríkjanna í apríl í fyrra þá var það aðallega mynd sem sýndi Trump dusta flösu af jakka Frakkans sem vakti athygli. Síðan var það handabandið fræga í París í júlí. Samt sem áður náði handatak þeirra í lok maí í fyrra að vekja athygli þar sem það stóð í nokkrar sekúndur.
Undanfarna daga hafa þeir tekist á í netheimum þar sem Twitter hefur verið orrustuvöllurinn. Þar snerist bardaginn um ákvörðun Trumps um að leggja innflutningstolla á ál og stál frá ríkjum Evrópusambandsins.
En þrátt fyrir allt þá virðast þeir virða hvor annan. „Við eigum í mjög góður sambandi, mjög sérstöku,“ sagði Trump við fréttamenn eftir að hafa heilsað Macron í gærkvöldi.