Ríkisstjórn Austurríkis hefur varað við því að hún muni jafnvel grípa til aðgerða til þess að verja landamærin við Ítalíu og Slóveníu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá ríkisstjórninni eftir að samkomulag náðist innan þýsku ríkisstjórnarinnar um að leggja hömlur á komu flóttafólks til landsins. Með samkomulaginu var bundinn endir á deilur innan ríkisstjórnarinnar í Berlín en allt stefndi í afsögn innanríkisráðherrans.
Í samkomulaginu sem Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og Horst Seehofer innanríkisráðherra gerðu sín á milli í gær kemur meðal annars fram að eftirlit á landamærum Austurríkis verði hert og komið í veg fyrir að hælisleitendur sem hafa sótt um hæli í öðrum ríkjum Evrópusambandsins fái að koma til Þýskalands.
Austurrísk yfirvöld segja að þau verði viðbúin því að grípa til svipaðra aðgerða til þess koma í veg fyrir að hælisleitendur geti komið til landsins um landamæri ríkisins í suðri. Með samþykkt þýsku ríkisstjórnarinnar sé enn einu sinni sýnt fram á mikilvægi sameiginlegra varna ríkja Evrópusambandsins.
Kanslari Austurríkis, Sebastian Kurz, mun í dag kynna fyrir Evrópuþinginu í Strassborg helstu áherslumál Austurríkis sem fer með forsæti í ESB næstu sex mánuðina. Er fastlega gert ráð fyrir að þar verði málefni hælisleitenda og flóttafólks ofarlega á baugi.