Hvíti þjóðernissinninn Richard Spencer segist hafa verið stöðvaður á Keflavíkurflugvelli á þriðjudag á leið sinni frá Bandaríkjunum til Svíþjóðar. Þar átti hann að halda ræðu á ráðstefnu en var þess í stað snúið aftur til Bandaríkjanna.
Spencer segir í samtali við AP-fréttastofuna að honum hafi verið haldið á flugvellinum í um þrjár klukkustundir áður en flogið var með hann aftur vestur yfir haf. Hann segir íslenska landamæraverði hafa sagst vera að fylgja fyrirmælum frá pólskum yfirvöldum.
Greint var frá því í pólskum fjölmiðlum í nóvember að þarlend yfirvöld hefðu bannað Spencer að koma inn á Schengen-svæðið næstu fimm árin.
„Þetta er fáránlegt. Það er ekki eins og ég ætli að fremja einhvern glæp,“ sagði Spencer við AP. Talsmaður pólsku lögreglunnar hafði ekki heyrt af málinu.
Spencer er upphafsmaður hugtaksins alt-right (hitt hægrið), sem margir þjóðernisöfgamenn kalla sjálfa sig. Spencer hefur kallað eftir „friðsömum þjóðernishreinsunum“ og ítrekað notast við tilvitnanir og stef úr ræðum nasista.
Hann var skipuleggjandi mótmælanna í Charlottesville síðasta haust þegar því var mótmælt að stytta af Robert E. Lee, hershöfðingja Suðurríkjanna í þrælastríðinu, yrði fjarlægð. Mótmælin kostuðu eina konu lífið og í það minnsta 19 slösuðust.