Emmanuel Macron, forseti Frakklands, verður í stúkunni þegar Frakkar leika gegn annaðhvort Belgum eða Brasilíumönnum í undanúrslitum HM í knattspyrnu í næstu viku. Breskir ráðamenn halda hins vegar áfram að sniðganga keppnina vegna taugagasárásar gegn rússneskum feðgum í Bretlandi í vor.
Macron hafði lofað því að hann yrði á staðnum ef Frakkar kæmust í undanúrslitaleikinn sem fer fram á þriðjudaginn í Pétursborg. Staðfesting þess efnis barst frá skrifstofu forsetans eftir 2:0 sigur Frakka á Úrúgvæ í 8-liða úrslitum fyrr í dag.
Ákveðið var í mars að breskir ráðamenn myndu sniðganga heimsmeistaramótið vegna þess að þeir töldu að Rússar hefðu ekki gefið trúverðug svör um aðkomu sína að morðtilræðinu á Skripal-feðgininum, sem voru fórnarlömb eiturefnaárásar í Bretlandi í byrjun mars.
Rússnesk yfirvöld neita því að þau standi á bak við árásina en Novichok-taugagas var notað til að eitra fyrir feðginunum.
Parið Dawn Sturgess, 44 ára og Charlie Rowley, 45 ára, voru flutt þungt haldin á sjúkrahús síðasta laugardag eftir að hafa komist í snertingu við Novichok-taugagas. Grunar lögreglu að eitrið sé afgangur frá taugagasárásinni sem gerð var á rússnesku Skripal-feðginin fyrir fjórum mánuðum.