Forsætisráðherra Nýja-Sjálands, Jacinda Ardern, hefur fryst laun þingmanna og segir að fyrirhugaðar launahækkanir þeirra séu á skjön við aðrar launahækkanir í landinu og til þess eins að auka bilið á milli ríkra og fátækra enn frekar.
Ákvörðun hennar nýtur stuðnings allra ríkisstjórnarflokkanna sem og Þjóðarflokksins, sem er í stjórnarandstöðu.
Ardern er formaður Verkamannaflokks Nýja-Sjálands og hefur gegnt embætti forsætisráðherra frá því í október í fyrra.
Laun þingmanna verða fryst þangað til í júlí á næsta ári að sögn Ardern og sanngjarnari aðferð verði beitt í framtíðinni þegar kemur að hækkun launa þingmanna. Árslaun þingmanna í Nýja-Sjálandi eru frá 163 þúsund nýsjálenskum dölum til rúmlega 450 þúsund dala. Þetta samsvarar 11,7 til 32,4 milljónum króna.
Ardern segir að það eina rétta í stöðunni hafi verið að frysta laun þeirra og væri ekki gert til þess að draga úr kostnaði heldur gert til þess að gera Nýja-Sjáland að meira jafnréttisþjóðfélagi.
Forsætisráðherra var hvattur til þess að grípa til aðgerða eftir að kjararáð lagði til að laun þingmanna hækkuðu um 3%. Fjölmörg stéttarfélög á Nýja-Sjálandi hafa farið í verkfall í ár og má þar nefna kennara, hjúkrunarfræðinga og fleiri starfsstéttir.
Laun forsætisráðherra á ári nema 32,4 milljónum króna sem eru hærri laun en forsætisráðherra Kanada, Justin Trudeau, og forsætisráðherra Bretlands, Theresa May, hafa samkvæmt frétt Guardian.