Nöfn tveggja rússneskra ríkisborgara, sem grunaðir eru í máli þar sem eitrað var fyrir Skrípal-feðginunum Sergei og Júlíu, hafa verið gerð opinber. Til stendur að gefa út ákæru á hendur þeim Alexander Petrov og Ruslan Boshirov vegna árásarinnar sem átti sér stað í Salisbury á Englandi í mars. BBC greinir frá.
Mennirnir tveir eru báðir um fertugt og eru grunaðir um að hafa notast við fölsk nöfn. Lögreglan í Bretlandi kveðst hafa næg sönnunargögn gegn mönnunum til þess að leggja fram ákæru og sakfella þá fyrir árásina.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu lentu mennirnir á Gatwick-flugvelli 2. mars og gistu á City Stay Hotel í austurhluta London áður en þeir fóru til Salisbury 4. mars, þar sem útihurð Skripal var menguð með Novichok-taugaeitri.
Á meðal þess sem mennirnir tveir, Petrov og Boshirov, eru ákærðir fyrir er að leggja á ráðin um að myrða Sergei Skrípal, morðtilraun gegn Sergei Skrípal, Júlíu Skrípal og Nick Bailey, notkun og varsla á Novichok og að hafa valdið Júlíu Skrípal og Nick Bailey alvarlegu líkamstjóni.
Lögregluþjónninn Nick Bailey veiktist af eitrinu þegar hann sinnti máli Skripal-feðginanna. Öll þrjú komust lifandi frá árásinni.
Þau Dawn Sturgess og Charlie Rowley komust í snertingu við Novichok nokkrum mánuðum seinna eftir að Rowley fann ilmvatnsglas með eitrinu. Hann lifði atvikið af en Sturgess lést á sjúkrahúsi. Breska lögreglan hefur staðfest að málið tengist máli Skripal-feðginanna og sætir það sömu rannsókn. Ólíklegt þykir að árásinni hafi viljandi verið beint gegn Sturgess og Rowley, en gáleysisleg meðferð eitursins varð til þess að þau komust í snertingu við það.
Að sögn saksóknara í málinu verður ekki óskað eftir framsali mannanna tveggja frá Rússlandi, þar sem rússnesk stjórnvöld framselja ekki ríkisborgara sína.
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, heldur erindi á breska þinginu síðar í dag þar sem hún mun upplýsa þingmenn um stöðu mála.
Fréttin hefur verið uppfærð.