42 handteknir í mótmælum í París

00:00
00:00

42 mót­mæl­end­ur voru hand­tekn­ir í óeirðum sem brut­ust út á Champs-Élysées-stræt­inu í miðborg Par­ís­ar í dag þar sem tugþúsund­ir manna komu sam­an til að mót­mæla hækk­un á eldsneytis­verði auk fleiri stefnu­mála rík­is­stjórn­ar Emm­anu­els Macron Frakk­lands­for­seta.

Lög­regl­an beitti tára­gasi og sprautaði vatni til að dreifa hópi mót­mæl­enda sem reyndu að kom­ast inn fyr­ir ör­ygg­is­girðingu sem lög­regl­an hafði reist við sig­ur­bog­an­um á Champs-Élysées. 19 særðust í mót­mæl­un­um, þar af fjór­ir lög­reglu­menn.

Mót­mæl­end­urn­ir klæðast all­ir skærg­ul­um ör­ygg­is­vest­um og fara því ekki fram hjá nein­um. Um 3000 lög­reglu­menn voru að störf­um í Par­ís og hluti mót­mæl­end­anna kastaði ýmsu laus­legu í átt að lög­reglu og rifu niður um­ferðarljós og um­ferðar­skilti. Mót­mæl­in hafa stig­magn­ast síðustu vik­ur og er þetta önn­ur helg­in í röð þar sem mót­mæl­end­ur klæðast gul­um vest­um og vilja þeir með því stöðva um­ferð til að vekja at­hygli á málstað sín­um.

Alls voru um 81.000 manns sam­an kom­in í miðborg Par­ís­ar í dag. Mót­mæli voru skipu­lögð á um tvö þúsund stöðum víðs veg­ar um landið og í heild­ina tóku um 280 þúsund manns þátt í mót­mæl­un­um í dag. Alls voru 130 mót­mæl­end­ur hand­tekn­ir um allt Frakk­land.

Macron tjáði sig um at­b­urði dags­ins á Twitter þar sem hann þakkaði lög­reglu fyr­ir þeirra störf en smánaði þá sem veitt­ust að eða ógnuðu óbreytt­um borg­ur­um, fjöl­miðlafólki eða stjórn­mála­fólki. „Það er ekk­ert rými fyr­ir of­beldi í (franska) lýðveld­inu,“ skrif­ar Macron í færslu sinni.


Mótmælin fara fram undir yfirskriftinni: Gulu vestin.
Mót­mæl­in fara fram und­ir yf­ir­skrift­inni: Gulu vest­in. AFP
„Macon, segðu af þér,“ stendur á vestinu sem einn mótmælendanna …
„Macon, segðu af þér,“ stend­ur á vest­inu sem einn mót­mæl­end­anna klædd­ist í dag. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert