Annegret Kramp-Karrenbauer hafði sigur í leiðtogakjöri Kristlegra demókrata í Þýskalandi sem fram fór í dag. Tekur hún við af Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, en Kramp-Karrenbauer er náinn bandamaður Merkel. Hafði Merkel lýst yfir stuðningi við hana.
Fram kemur í frétt AFP að niðurstaðan hafi verið naum en Kramp-Karrenbauer, sem var áður framkvæmdastjóri flokksins, hlaut 52% atkvæða í síðari umferð leiðtogakjörsins þar sem hún atti kappi við Friedrich Merz, 63 ára viðskiptalögfræðing sem hætt hafði afskiptum af stjórnmálum 2009 eftir að hafa lotið í lægra haldi í valdabaráttu við Merkel.
Kramp-Karrenbauer hefur lagt áherslu á að halda Kristilegum demókrötum við miðju stjórnmálanna líkt og Merkel hafi gert en Merz vildi færa hann til hægri. Kjör Kramp-Karrenbauer þykir auka líkurnar á að Merkel geti lokið fjórða kjörtímabili sínu sem kanslari en það stendur til 2021. Merkel tók við sem leiðtogi árið 2000 og kanslari 2005.