Mótmæli gegn stjórnvöldum í Frakklandi eru orðin að skrímsli segir Christphe Castaner, innanríkisráðherra Frakklands. Segir BBC Castaner vara við því að „róttæk öfl“ kunni að lauma sér inn í skipulögð mótmæli „gulu vestanna“ svo nefndu nú um helgina.
Castaner bætti við að gripið verði til „umfangsmikilla öryggisaðgerða“ um helgina.
Eiffel-turninum og fleiri ferðamannastöðum í París verður lokað á morgun vegna ótta um að upp úr sjóði í mótmælunum. Þá verða 89.000 lögreglumenn á vakt víðs vegar um Frakkland og brynvarðir bílar verða notaðir í höfuðborginni að því er Edouard Philippe, forsætisráðherra landsins, hefur tilkynnt.
BBC segir lögreglu þá hafa hvatt verslunareigendur og veitingastaðareigendur við Champs Elysees-breiðgötuna í París að hafa lokað. Nokkur af söfnum borgarinnar hafa einnig ákveðið að loka sínum dyrum.
Verulegar skemmdir urðu á bílum og fyrirtækjum við Champs Elysees um síðustu helgi er upp úr sauð í mótmælunum, sem hófust fyrir þremur vikum og beindust þá gegn áformaðri hækkun á eldsneytisverði. Frönsk stjórnvöld hafa nú hætt við fyrirhugaða hækkun, en mótmælin hafa beinast nú gegn öðrum málum, m.a. breytingum á menntalöggjöfinni.
AFP-fréttastofan segir frönsk yfirvöld þegar hafa lagt hald á 28 bensínsprengjur og þrjár heimatilbúnar sprengjur sem teknar hafi verið frá gulu vestunum í suðurhluta landsins.